Að heiman
þingeysk tónlist í léttum leik
nýtt íslenskt tónverk á tónleikum í Húsavíkurkirkju sunnudaginn 3. febrúar kl. 15:30
snúður Þriðju tónleikar Hlífar Sigurjónsdóttur til að minnast og heiðra fiðlu- og tónmenningu í Suður Þingeyjarsýslu verða í Húsavíkurkirkju sunnudaginn 3. febrúar klukkan 15:30


 Efnisskrá

J.S. Bach: Sónata II í a moll, BWV 1003
  grave
  fuga
  andante
  allegro
Merrill Clark: Úr: The Sorceress - Sigurjónsdóttir Sonata
  Song
frumflutningur
Rúna Ingimundar: Að heiman
þingeysk þjóðlög í léttum leik
frumflutningur
Eugène Ysaÿe: Sónata nr. 3 ópus 27
„Ballade“
Frekari upplýsingar gefur Hlíf Sigurjónsdóttir í síma 863 6805 • www.HlifSigurjons.isHlifSigurjons@HlifSigurjons.is
Hér má nálgast bækling um tónleikana, texta um tónleikana, tónskáldin og allar efnisskrár


Á tónleikum Hlífar Sigurjónsdóttur fiðluleikara í Húsavíkurkirkju sunnudaginn 3. febrúar verður frumflutt tónverkið Að heiman eftir tónskáldið og Húsvíkinginn Rúnu Ingimundar.
Efniviður tónverksins er fenginn úr fimm þjóð- og kvæðalögum sem voru meðal þeirra fjölda laga sem langa-langafi Rúnu, Benedikt Jónsson á Auðnum skráði og birtust í þjóðlagasafni séra Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði sem kom út 1909.

Að öðrum ólöstuðum má telja að Benedikt á Auðnum (1846 - 1939) hafi átt stærstan þátt í þeim uppgangi tónlistariðkunar sem varð í Suður Þingeyjarsýslu á síðari hluta 19. aldar og náði langt fram á liðna öld. Hann skráði á annað hundrað þjóðlaga sem hann sendi séra Bjarna og hann útvegaði sýslungum sínum hljóðfæri, nótur og annan fylgibúnað erlendis frá. Sjálfur lék hann á flautu og hvatti menn til dáða.
Þessir tónleikar eru þeir þriðju af sex í tónleikaröð Hlífar til að minnast og heiðra fiðlu- og tónmenningu S-Þingeyinga. Önnur verk sem flutt verða eru Sónata nr. 2 í a moll eftir Johann Sebastian Bach, Söngur, kafli úr sónötu eftir bandaríska tónskáldið Merrill Clark - þar er einnig um frumflutning að ræða - og Sónötu nr. 3 - "Ballade" eftir fiðlusnillinginn Eugène Ysaÿe. Tónleikarnir hefjast klukkan 15:30.

Guðrún Ingimundardóttir (Rúna Ingimundar) er fædd á Húsavík og ólst þar upp við söng og hljóðfæraleik, leiklist og dans. Hún nam söng, píanóleik og síðar flautuleik við Tónlistarskólana á Húsavík og Akureyri. Eftir stúdentspróf hóf hún nám á tónfræðibraut Tónlistarskólans í Reykjavík og útskrifaðist vorið 1987. Hún lauk meistaragráðu í tónsmíðum og tónfræði frá Háskólanum í Arizona vorið 1990 og doktorsgráðu í tónsmíðum og tónlistarmannfræði frá sama háskóla vorið 2009. Hún býr á Siglufirði, er tónlistarkennari og kórstjóri við Tónskóla Fjallabyggðar og hefur jafnframt verið leiðbeinandi nemenda í meistaranámi við Listaháskóla Íslands og Háskólann á Bifröst. Rúna hefur mikinn áhuga á íslenskri þjóðlagatónlist og kvæðamennsku og leitar oft í þjóðlagaarfinn eftir innblæstri í tónsmíðar sínar. Hún stóð fyrir stofnun Kvæðamannafélags í Fjallabyggð og stýrði fyrsta Landsmóti Kvæðamanna sem haldið var á Siglufirði í mars 2012.

Að heiman samið sérstaklega fyrir þessa tónleikaröð og byggir á fimm þjóð- og kvæðalögum sem Benedikt á Auðnum skráði: Fram á regin fjallaslóð, Maðurinn sem úti er, Skelfur undir elfa og grund, Sumarið þegar setur blítt og Senn er komið sólarlag. Lögin eru kynnt til sögunnar í sinni einföldu mynd og síðan er spunnið út frá hverju lagi - þjóðlagið, fullkomið í sínum einfaldleika, er stofn trésins og spuninn eru greinarnar. Allt tónmálið er byggt á stofninum rétt eins og hljóðheimur tónskáldsins sem hvílir á hljómi uppvaxtaráranna á Húsavík.

Hlíf Sigurjónsdóttir er fædd í Kaupmannahöfn en ólst upp í Reykjavík. Hún kom fyrst opinberlega fram 11 ára gömul er hún lék einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún nam fiðluleik hjá Birni Ólafssyni konsertmeistara við Tónlistarskólann í Reykjavík og fór síðar til framhaldsnáms við Háskólana í Indiana og Toronto og Listaskólann í Banff og nam einnig hjá Gerald Beal fiðluleikara í New York borg. Á námsárum sínum kynntist hún og vann með mörgum merkustu tónlistarmönnum tuttugustu aldarinnar, þar á meðal William Primrose, Zoltan Szekely, György Sebök, Rucciero Ricci og Igor Oistrach. Hlíf hefur haldið fjölda einleikstónleika og leikið með sinfóníuhljómsveitum og kammersveitum víða um Evrópu, í Bandaríkjunum og Kanada. Hún hefur frumflutt mörg tónverk sem samin hafa verið sérstaklega fyrir hana. Hlíf hefur leikið inn á upptökur fyrir útvarp og sjónvarp og nokkra geisladiska við frábæran orðstír, þar á meðal allar partítur og sónötur fyrir einleiksfiðlu eftir J.S. Bach.

Nýr geisladiskur Duo Landon, hennar og Martin Frewer, með íslenskri tónlist hlaut fimm stjörnur Tónlistargagnrýnanda Morgunblaðsins og gaf sá diskur, að hans mati, ekki eftir fyrri diski dúósins frá 2005, sem einnig hlaut fimm stjörnur með orðunum „Þjóðleg innlifun á heimsmælikvarða". Hún hlaut sex mánaða starfslaun listamanna árið 2012.