Fréttatilkynning
Tónleikar í Háteigskirkju
sunnudaginn 26. febrúar 2017 klukkan 20:00
til að minnast Björns Ólafssonar 100 ára


„Einleiksverk þessi hafa fylgt mér allar götur frá námsárum mínum hjá Birni heitnum Ólafs­syni kon­sert­meistara, en ég var svo lán­söm að stunda nám hjá þessum frá­bæra tón­listar­manni. Björn áleit sónötur og partítur Bachs biblíu fiðlu­leikarans og mér eru þessi verk mjög hugstæð.“
Í vetur flytur Hlíf Sigur­jóns­dóttir allar sónötur og partítur fyrir ein­leiks­fiðlu eftir J.S. Bach á þrenn­um tón­leik­um í Há­teigs­kirkju í Reykja­vík og í Vor­frúar­kirkju í Svend­borg á Fjóni. Á hverjum tón­leik­anna má enn­fremur hlýða á nú­tíma­verk fyrir ein­leiks­fiðlu sem samið hefur verið fyrir Hlíf. Á fyrstu tón­leikunum lék Hlíf Sónötu númer 1 í g moll og Partítu númer 1 í h moll eftir Bach og Vetrar­tré eftir Jónas Tómas­son.

­     Á þessum öðrum tón­leik­um rað­ar­inn­ar, 26. febrúar, er þess minnst að liðin eru eitthundrað ár frá því að einn á­stsæl­asti fiðlu­leik­ari þjóð­ar­inn­ar, Björn Ólafs­son konsert­meist­ari fæddist. Leikin verða Sónata númer 2 í a moll og Partíta númer 2 í d moll eftir Bach og verkið „Að heiman − þing­eysk þjóð­lög í léttum leik“ sem Rúna Ingi­mundar samdi fyrir Hlíf 2012. Þessi efnis­skrá verður síðar flutt í Vor­frúar­kirkju í Svend­borg á Fjóni 13. mars og í Hvid­bjergs kirkju í Svan­kjær á Jót­landi 16. mars næstkomandi.

    Hlíf hefur hljóð­rit­að all­ar part­ítur og són­ötur eftir J.S. Bach og gaf þær út á tveim­ur geisla­disk­um ár­ið 2008 og voru diskarnir endur­útgefn­ir hjá banda­rísku út­gáf­unni MSR-Classics (MS-1605). Einnig lék hún þær á tvenn­um tón­leik­um í New York borg í jan­ú­ar 2010 og 2011. Hafa tón­leikarn­ir og disk­arn­ir hlot­ið afar lof­lega dóma:
úr dómum um Bach tónleikana í NY 2010
„The concert was absolutely magnificent and exceeded all my expectations. ... I would recommend her concerts to anyone interested in hearing one of the most promising, young violinists of our time.“
Gerald M. Goldhaber, Ph.D. President and CEO, N.Y.

úr dómum um Bach tónleikana í NY 2011
„Hlif Sigurjonsdottir has fantastic tone and interpretive insight, simultaneously vigorous and lacey delicate. Bach is Bach, and the incredibly rare performer – a few in each generation – who play like her seem a heavenly revelation. Bach's canonic writing is glorious.“
Mark Greenfest tónlistargagnrýnandi í NY, sem ritar dóma m.a. fyrir NMC Newsletter

úr dómum um geisladiska hennar með einleiksverkum Bachs:
„Sigurjónsdóttir's phrasing is crystalline clear. (In different close hearings a couple of months apart I found myself writing down this same phrase.) Her music breathes and details are masterfully shaded. Her tempos are not rigid and her timings, of individual movements, are both slower and faster than other players.“
R. James Tobin Classical Net 2010.     dómurinn í heild

„The Mount Everest of these Himalayas, the great Ciaccona (Chaconne) in Partita No. 2, receives particular care from Sigurjónsdóttir as she explores all the great features in this long (15:48) work in ways that make it continually engaging for the listener. Her pacing here is absolutely perfect as she forms what is initially a rather square-toed conception into a thing of exquisite beauty. Without sacrificing any of its fluidity, she employs discrete variations in tempo, as in the passages of increasing urgency that set the stage for the wonderful moment of relaxation that steals upon us at just about the midpoint of the Chaconne. You don’t have to be terribly learned musically to realize that something wonderful has transpired in Bach’s monumental set of variations on a ground bass. Sigurjónsdóttir does the hard work for you, so just sit back and enjoy!“
Phil Muse, Audio Club of Atlanta 2016  dómurinn í heild
Þessa dóma og aðra má lesa á heimasíðu Hlífar.


Hlíf Sigurjónsdóttir er fædd í Kaup­manna­höfn en ólst upp í Reykja­vík. Hún nam fiðlu­leik hjá Birni Ólafs­syni kon­sert­meistara við Tón­listar­skól­ann í Reykja­vík og fór síðar til fram­halds­náms við Há­skól­ana í Indiana og Toronto og Lista­skól­ann í Banff. Einnig nam hún hjá Gerald Beal fiðlu­leik­ara í New York borg. Á náms­árum sín­um kynnt­ist hún og vann með mörg­um merk­ustu tón­listar­mönn­um tutt­ug­ustu ald­ar­inn­ar, þar á meðal Will­iam Prim­rose, Zoltan Szekely, György Seb­ök, Rucciero Ricci og Igor Oistr­ach.

    Hlíf hefur haldið fjölda ein­leiks­tón­leika og leikið með sin­fón­íu­hljóm­sveit­um og kammer­sveit­um víða um Evr­ópu, í Banda­ríkj­un­um og Kanada. Haustið 2014 kom geisla­disk­ur­inn DIALOGUS út hjá MSR Classics í Banda­ríkj­un­um með ein­leiks­verk­um í hennar flutn­ingi, sem sam­in hafa verið sér­stak­lega fyrir hana. Maria Nockin, tón­listar­gagn­rýn­andi Fanfare Magazine, til­nefndi þann disk „CD of the year 2015“. Haust­ið 2015 endur­út­gaf sama út­gáfu­fyrir­tæki tvö­fald­an geisla­disk, frá ár­inu 2008, þar sem hún lék allar són­ötur og part­ítur fyrir ein­leiks­fiðlu eftir Johann Sebast­ian Bach. Hafa báðir þess­ir diskar hlot­ið mikið lof gagn­rýn­enda.
Hlíf Sigurjóns­dóttir • sími 863−6805 • HlifSigurjons(hjá)HlifSigurjons.is • heimasíða
Aðgangseyrir 2.000 kr. − ATH enginn posi á staðnum!