Sagan í tónum
Úr hljóðritasafni Ríkisútvarpsins
Björn Ólafsson konsertmeistari var án efa einn af merkustu
tónlistarmönnum þjóðarinnar og enn muna margir eftir
fiðluleik hans, jafnt á tónleikum og í útvarpi. Í
kjallara útvarpshússins er fjöldi upptaka með honum og
samtíðarmönnum hans sem sjaldan heyrist, að nokkru leyti vegna
þess að mikil vinna felst í því að yfirfæra
tónlistina á nýtt form og hreinsa hana.
Fyrir rúmri hálfri öld kom út lítil 45 snúninga
plata með leik Björns og er hún löngu orðin ófáanleg.
Því er það gleðiefni að nú
er á leiðinni geisladiskur með úrvali af
upptökum á verkum íslenskra
tónskálda í flutningi Björns og
samtímamanna hans. Forvinnu að disknum er lokið
með stuðningi Tónlistarsjóðs og
Ríkisútvarpið gaf leyfi fyrir útgáfunni.
Nú leita ég til stuðningsmanna og
velunnara klassískrar tónlistar að
styrkja útgáfu þessa og eignast í staðinn
geisladisk og endurnýja þannig kynni við þennan
frábæra listamann.
Söfnunin fer fram í gegnum
Karolina
Fund.
Með kærri kveðju og þakklæti
Hlíf
Sigurjónsdóttir |
|
|
Geisladiskurinn inniheldur úrval tónverka eftir fyrstu kynslóð íslenskra tónskálda í flutningi Björns Ólafssonar fiðluleikara við undirleik Jóns Nordal, Wilhelm Lansky-Otto, Árna Kristjánssonar og Jórunnar Viðar.
JÓN NORDAL
Systur í Garðshorni fyrir fiðlu og píanó (1944)
Ása
Signý
Helga
ÞÓRARINN JÓNSSON
Forleikur og tvöföld fúga yfir nafnið BACH fyrir
einleiksfiðlu (1925)
Forleikur
Fúga
JÓN NORDAL
Fiðlusónata fyrir fiðlu og píanó (1952)
Allegro moderato
Adagio
Allegretto
JÓN LEIFS
Prelúdía og fúghetta fyrir einleiksfiðlu
Prelude
Fughetta
ÞÓRARINN JÓNSSON
Húmoreska fyrir fiðlu og píanó (1927)
HELGI PÁLSSON (1899-1964)
úr Sex þjóðlögum ópus 6
fyrir fiðlu og píanó (1962)
nr. 5 Poco allegro e scherzando
nr. 6 Andante
JÓRUNN VIÐAR
Þjóðlífsþættir, úr svítu í
fimm þáttum fyrir fiðlu og píanó (1974)
nr. 3 Þjóðlag
nr. 4 Fiðlulag
nr. 5 Vikivaki
|