Um tónverk

Seiðkonan - The Sorceress
Á einleikstónleikum í Merkin Hall í janúar síðastliðnum hreifst bandaríska tónskáldið Merrill Clark svo af flutningi mínum á verkum Bach [sjá umsögn hans] að hann hóf að skrifa verk fyrir mig er hann nefndi The Sorceress - Sigurjónsdóttir Sonata.
     Verkið er í 5 köflum í nýklassískum stíl, þar er m.a. Prelude, Fugue og Chaconne í anda Bachs. Þetta er mjög skemmtilegt og krefjandi verk og tónskáldið hefur greinilega tröllatrú á færni minni á hljóðfærið því það er mjög erfitt í flutningi.
     Ég mun frumflytja inngangskaflann, Prelude, á tónleikum í Norræna húsinu 20. október 2010 og einnig mun ég flytja hann á einleikstónleikum í New York 15. janúar 2011.


May Swale er eftir tónskáldið og kvennréttindakonuna Beth Anderson-Harold sem er fædd í Kentucky en býr og starfar í New York. „Swale" þýðir votlendi eða mýrlendi þar sem raki er nægur og næring góð og fjölbreyttur gróður þrífst.




   Vetrartré
          góð tré
          sorgmædd tré
          óð tré
          þögul . . .


Jónas Tómasson samdi Vetrartré fyrir mig vorið 1983, en þá hafði ég kennt tvo vetur á Ísafirði. Síðari veturinn hafði verið með afbrigðum snjóþungur og þegar ég kvaddi Ísafjörð í júní með Vetrartrén í farteskinu voru enn fannir í garðinum hjá Jónasi og Siggu og var Jónas að hlúa að trjám og saga greinar sem brotnað höfðu undan fargi vetrarins.“ H.S.

Að loknu námi í Reykjavík, meðal annars hjá þeim Jóni Þórarinssyni og Þorkatli Sigurbjörnssyni, hélt Jónas Tómasson til framhaldsnáms í Amsterdam 1969-72 hjá þeim Ton de Leeuw, Léon Orthel og Jos Kunst. Nú kennir Jónas við Tónlistarskóla Ísafjarðar og hefur hann jafnframt stjórnað ýmsum hljóðfærasveitum og kórum bæjarins. Þessar kringumstæður hafa örvað Jónas til að semja fyrir þá tónlistarmenn og hljóðfæraflokka sem hann starfar með. Eftir hann liggur fjöldi verka og þar eru hljómsveitar-, kammer- og kórverk mest áberandi. Oftast er tónlist hans hægferðug, innhverf og mjög frjáls í formi.


Sjá einnig enska lýsingu - sjá einnig tóndæmi

Vintertræer/Vetrartré af Jónas Tómasson

"I årene 1981 til 1983 underviste jeg på Musikskolen i Ísafjörður (Isefjord). Det er en lille, men betydningsfuld fiskerby ved Vestfjordene. Den ligger mellem høje fjelde, ikke langt fra den nordlige polarkreds, hvor solens stråler ikke rækker hen i hele seks uger i den mørkeste vintertid.

Her er komponisten Jónas Tómasson født i 1946, og efter uddannelse ved konservatorier i Holland og Tyskland flyttede han tilbage.

Vinteren 1982-83 var usædvanlig streng med kulde og frost og et snedække så tykt, at det først var tøet helt væk i august. Den langvarige kulde- og sneperiode var vanskelig for mennesker og planter, ikke mindst for træerne, som også led herunder.

Under disse særlige forhold blev de menneskelige relationer og venskaber mellem byens beboere til gengæld styrket. Jónas Tómasson komponerede soloværket Vintertræer/Vetrartré kort efter min fars død og tilegnede mig det tidligt på året i 1983. Kompositionen er en elegi, der også rummer kim der giver løfte om nyt spirende liv, og som sådan står værket mig meget nær."


Tilbrigði við Victimae paschali laudes
eftir Alfred Felder. Samið fyrir Hlíf 1987

Alfred Felder fæddist í Lucerne í Sviss árið 1950, stundaði nám í sellóleik og tónsmíðum við tónlistarskólann þar og lauk kennaraprófi í sellóleik. Þaðan hélt hann til náms í Austurríki og lauk einleikaraprófi frá Mozarteum háskólanum í Salzburg.
    Hann var félagi í Festival Strings Lucerne á árunum 1977 - 1983, en hefur einnig haldið einleikstónleika í mörgum löndum Evrópu, í Kanada og víða um Austurlönd fjær.
    Sem tónskáld hefur Alfred Felder reynt að nálgast gamlar hefðir sem felast í nánu samstarfi tónskálds og hljóðfæraleikara. Reynsla hans sem sellóleikari hefur veitt honum visst listrænt frelsi við tónsmíðar sínar og gert honum kleift að tjá sig á persónulegan hátt um leið og hann styðst við hefðbundnar aðferðir. Hann hefur samið verk fyrir fjölbreytilega hljóðfæraskipan, einleiksverk, kammerverk frá dúó til oktetts, konserta, þar á meðal tvöfaldan konsert (fyrir fiðlu, selló og hljómsveit), einsöngvara og kóra. Fyrir utan Sviss hafa verk hans verið flutt á hátíðum t.d. í Tókíó, Suður Afríku, Bandaríkjunum og Rússlandi. Tónverk hans eru gefin út á hljómplötum og geisladiskum hjá hjá fyrirtækjum á borð við VDE Gallo, Swiss Pan, Centaur Records, Swiss Music Edition SME, KaNo Musikverlag og Gilgenreinerverlag. Hann hefur ánafnað Borgarbókasafninu í Zürich öll handrit sín.

"Ég kynntist Alfred Felder gegnum sameiginlega vini og kollega í Kammerhljómsveitinni Zürich í Sviss árið 1987. Hann samdi Tilbrigði við Victimae paschali laudes fyrir mig og sendi mér þá um haustið, er ég var komin heim til Íslands. Ég frumflutti verkið í Norræna húsinu vorið eftir. Alfred skrifar sjálfur um verkið:

Hljóm- og blæbrigðatilbrigði samin við gregoríska páskasálminn Victimae paschali laudes. Fyrir mér tákna páskarnir: þjáningu, dauða, sorg, upprisu og gleði. Einmitt þessa stemningu - skapbrigði frá sorg til gleði - langaði mig til að fanga í þessu verki.
    Að verkinu sjálfu. Eftir stuttan inngang er stefið, þ.e. sálmurinn sjálfur, kynnt. Því næst heyrast fjögur tilbrigði og í hverju þeirra eru allar nóturnar sem koma fyrir í sálminum, en eru hliðraðar til í áttundum og taktinum hefur verið breytt. Í niðurlagi verksins er bein tilvitnun í texta sálmsins tu nobis, victor Rex, miserere [þú hinn mikli konungur sem um eilífð ríkir, miskunna þú oss]."

    Tónverk fyrir tvær fiðlur
Forsaga: Er við Hjörleifur Valsson hófum að leika saman undir nafninu Duo Landon og gáfum út geisladiskinn 44 Dúó eftir Béla Bartók, kom í ljós að engin konsertverk voru til fyrir tvær fiðlur eftir íslensk tónskáld, en þessi hljóðfæraskipan er vinsæl á meginlandi Evrópu og mörg tónskáld hafa samið öndvegis verk fyrir þessi hljóðfæri.

  Við fengum því þrjú íslensk tónskáld til að semja fyrir okkur hvert sitt tónverk fyrir tvær fiðlur:
  1. Hildigunnur Rúnarsdóttir: 10 mínútur fyrir 2 fiðlur, samið 2006, frumflutt af Duo Landon; Hlíf Sigurjónsdóttur og Martin Frewer í Listasafni Íslands á Myrkum Músíkdögum 9. febrúar 2008.

  2. Jónas Tómasson: Concertino fyrir 2 fiðlur, blásarasveit og kontrabassa, frumflutt í Salnum í Kópavogi á Myrkum Músíkdögum 9. febrúar 2008. Flytjendur voru Hlíf Sigurjónsdóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðluleikarar ásamt Þóri Jóhannssyni bassaleikara og blásarasveitinni Hnúkaþey.

  3. Atli Heimir Sveinsson:   Vorið er komið. Frumflutt af Dúó Landon, Hlíf og Martin Frewer á Stofutónleikum í Listasafni Sigurjóns þann 24. maí 2009 kl. 20:00 - Efnisskrá - og endurflutt á Stríðsárasafninu á Reyðarfirði 30. maí 2009 kl. 16:00.
  1. quasi „folk music“
  2. Vivo
  3. Start together,after that, no synchronization; end independently
  4. quasi „folk music“
  5. con brio, molto energico
  6. (án nafns)
Atli Heimir skrifar: „Vorið er komið eru sex stutt lög fyrir tvær fiðlur. Verkið samdi ég vorið 2006, er ég naut gistivináttu Ingibjargar og Þóris, ræðismannshjónanna okkar í Tékklandi sem búa í nágrenni Prag, og tileinka ég þeim verkið. Um leið vann ég að Fjórðu sinfóníunni, sem frumflutt var af Tékknesku fílharmóníuhljómsveitinni í Prag ári síðar. Lögin urðu til á daglegum morgungöngum mínum um sveitina á óvenju köldu meginlandsvori. En svo raknaði úr vetrar-drómanum og sumarið kom einn daginn!"