| Hljóðfæri |
Ég leik á fiðlu sem
hinn þekkti franski fiðlu- og bogasmiður
Christophe
Landon hefur smíðað. Landon býr í New York en ferðast víða um heim og meðal viðskiptavina hans eru meðlimir New York Fílharmoníunnar og Berlínarfílharmoníunnar. Christophe er Íslendingum að góðu kunnur því hann hefur oft komið hingað til lands og gert við fiðlur og boga íslenskra hljóðfæraleikara. Þá hefur hann haft aðstöðu til þess í listasafni föður míns Sigurjóns Ólafssonar að Laugarnestanga 70. Á Íslandi eru nú fimm fiðlur og tvö selló sem Christophe hefur smíðað. |
|
|
| Nokkrar ljósmyndir af Isaac og Christophe frá heimsókn þeirra til Íslands í febrúar 2005 |
| Þegar hljóðfærasmiðirnir eru hérlendis má ná í þá í íslenska farsímann 865 5465 |