Fréttatilkynning
Lokatónleikar BACH tónleikaraðar


Tónleikar í Háteigskirkju
sunnudaginn 30. apríl 2017 klukkan 20:00


„Einleiksverk þessi hafa fylgt mér allar götur frá námsárum mínum hjá Birni heitnum Ólafs­syni kon­sert­meistara, en ég var svo lán­söm að stunda nám hjá þessum frá­bæra tón­listar­manni. Björn áleit sónötur og partítur Bachs biblíu fiðlu­leikarans og mér eru þessi verk mjög hugstæð.“
Í vetur flyt­ur Hlíf Sig­ur­jóns­dótt­ir allar són­öt­ur og part­ít­ur fyrir ein­leiks­fiðlu eftir J.S. Bach á þrenn­um tón­leik­um í Há­teigs­kirkju í Reykja­vík og í Vor­frúar­kirkju í Svend­borg á Fjóni. Á hverj­um tón­leik­anna má enn­frem­ur hlýða á nú­tíma­verk fyr­ir ein­leiks­fiðlu sem sam­ið hef­ur ver­ið fyrir Hlíf.

    Á þess­um loka­tón­leik­um rað­ar­inn­ar, 30. apríl, leik­ur Hlíf Són­ötu núm­er 3 í C dúr og Part­ítu núm­er 3 í E dúr eftir Bach. Þá mun hún frum­flytja fyrsta kafla í verki sem danska tón­skáldið og hljóð­færa­leik­ar­inn Povl Chris­tian Balslev er að semja fyrir hana og byggir á Skand­inav­ískum þjóð­lög­um. Síð­ari kafl­ar verks­ins verða frumflutt­ir á tón­leik­um Hlífar í Svend­borg á Fjóni 8. maí og leik­ur tón­skáld­ið með á píanó.

Um tónverkið segir tónskáldið:
"Lengi hefur verið deilt um hvort til sé sér­stak­ur nor­rænn tónn í ákveðn­um tón­verk­um sem rekja mætti aftur til alda­gamm­alla þjóð­laga. Á þetta við um lag­línu, rytma og hljóma­gang frá tím­um löngu fyrir dúr og moll. Inn­blást­ur­inn í verk­inu Þjóð­lag fyrir ein­leiks­fiðlu er sótt­ur í þenn­an gamla arf. Í þem­anu má heyra óm þjóð­lags­ins og í rytm­ísk­um til­brigð­um líka, en þó í nú­tíma­legu sam­hengi."
    Hlíf hefur hljóð­rit­að all­ar part­ítur og són­ötur eftir J.S. Bach og gaf þær út á tveim­ur geisla­disk­um ár­ið 2008 og voru diskarnir endur­útgefn­ir hjá banda­rísku út­gáf­unni MSR-Classics (MS-1605). Einnig lék hún þær á tvenn­um tón­leik­um í New York borg í jan­ú­ar 2010 og 2011. Hafa tón­leikarn­ir og disk­arn­ir hlot­ið afar lof­lega dóma:

úr dómum um Bach tónleikana í NY 2010
„The concert was absolutely magnificent and exceeded all my expectations. ... I would recommend her concerts to anyone interested in hearing one of the most promising, young violinists of our time.“
Gerald M. Goldhaber, Ph.D. President and CEO, N.Y.

úr dómum um Bach tónleikana í NY 2011
„Hlif Sigurjonsdottir has fantastic tone and interpretive insight, simultaneously vigorous and lacey delicate. Bach is Bach, and the incredibly rare performer – a few in each generation – who play like her seem a heavenly revelation. Bach's canonic writing is glorious.“
Mark Greenfest tónlistargagnrýnandi í NY, sem ritar dóma m.a. fyrir NMC Newsletter

úr dómum um geisladiska hennar með einleiksverkum Bachs:
„Sigurjónsdóttir's phrasing is crystalline clear. (In different close hearings a couple of months apart I found myself writing down this same phrase.) Her music breathes and details are masterfully shaded. Her tempos are not rigid and her timings, of individual movements, are both slower and faster than other players.“
R. James Tobin Classical Net 2010.     dómurinn í heild

„The Mount Everest of these Himalayas, the great Ciaccona (Chaconne) in Partita No. 2, receives particular care from Sigurjónsdóttir as she explores all the great features in this long (15:48) work in ways that make it continually engaging for the listener. Her pacing here is absolutely perfect as she forms what is initially a rather square-toed conception into a thing of exquisite beauty. Without sacrificing any of its fluidity, she employs discrete variations in tempo, as in the passages of increasing urgency that set the stage for the wonderful moment of relaxation that steals upon us at just about the midpoint of the Chaconne. You don’t have to be terribly learned musically to realize that something wonderful has transpired in Bach’s monumental set of variations on a ground bass. Sigurjónsdóttir does the hard work for you, so just sit back and enjoy!“
Phil Muse, Audio Club of Atlanta 2016  dómurinn í heild
Þessa dóma og aðra má lesa á heimasíðu Hlífar.


Hlíf Sigurjónsdóttir er fædd í Kaup­manna­höfn en ólst upp í Reykja­vík. Hún nam fiðlu­leik hjá Birni Ólafs­syni kon­sert­meistara við Tón­listar­skól­ann í Reykja­vík og fór síðar til fram­halds­náms við Há­skól­ana í Indiana og Toronto og Lista­skól­ann í Banff. Einnig nam hún hjá Gerald Beal fiðlu­leik­ara í New York borg. Á náms­árum sín­um kynnt­ist hún og vann með mörg­um merk­ustu tón­listar­mönn­um tutt­ug­ustu ald­ar­inn­ar, þar á meðal Will­iam Prim­rose, Zoltan Szekely, György Seb­ök, Rucciero Ricci og Igor Oistr­ach.
        Hlíf hefur haldið fjölda ein­leiks­tón­leika og leikið með sin­fón­íu­hljóm­sveit­um og kammer­sveit­um víða um Evr­ópu, í Banda­ríkj­un­um og Kanada. Haustið 2014 kom geisla­disk­ur­inn DIALOGUS út hjá MSR Classics í Banda­ríkj­un­um með ein­leiks­verk­um í hennar flutn­ingi, sem sam­in hafa verið sér­stak­lega fyrir hana. Maria Nockin, tón­listar­gagn­rýn­andi Fanfare Magazine, til­nefndi þann disk „CD of the year 2015“. Haust­ið 2015 endur­út­gaf sama út­gáfu­fyrir­tæki tvö­fald­an geisla­disk, frá ár­inu 2008, þar sem hún lék allar són­ötur og part­ítur fyrir ein­leiks­fiðlu eftir Johann Sebast­ian Bach. Hafa báðir þess­ir diskar hlot­ið mikið lof gagn­rýn­enda.

Povl_Chr_Balslev.jpg_560x600 Povl Christ­ian Balsl­ev er fædd­ur í Fjel­sted á Fjóni 1968 og er kom­inn af prest­um í marga ætt­liði. Á átj­ánda ári hóf hann að leika sem org­an­isti í sóknar­kirkj­um á Fjóni. Hann nam orgel­leik hjá Hans van Nieuw­koop pró­fess­or við Swee­linck tón­listar­há­skól­ann í Am­ster­dam 1989 − 90 og lauk Kirkju­tón­listar­prófi frá kon­ung­lega danska Tón­list­ar­há­skól­an­um 1996 með orgel­leik og stjórn­un sem höfuð­fög. Síð­an hefur hann sótt fjölda op­inna kennslu­stunda m.a. hjá Har­ald Vog­el, David Sang­er, And­ers Bonde­man, H.O. Erics­son, Jon Lauk­vik og Lars Ulrik Mort­ens­en (á cembalo) og í spuna hjá Will­iam Port­er í Bost­on.
        Povl er tón­skáld og jafn­víg­ur á píanó sem org­el. Árið 2003 lauk hann námi í leik á klukkna­spil og hef­ur síð­an leik­ið á kirkju­klukk­ur víða í Evr­ópu, Banda­ríkj­un­um og Jap­an.
        Árið 2002 tók hann við stöðu org­an­ista, kant­ors og klukkna­spils­leik­ara við Vor­frúar­kirkj­una í Svend­borg á Fjóni og einn­ig kenn­ir hann við kirkju­tón­listar­skól­ann í Løg­umklaustri. Povl hefur mik­inn á­huga á kór­söng og kóra­starfi og stjórn­ar tveim­ur kór­um í Svend­borg. Hann hefur stað­ið fyrir tón­listar­há­tíð­um þar, t.d. Vor­frúar­há­tíð­inni, kóra­hát­íð­inni „Syng­Syd­fyn“ og fjöl­þjóð­legu klukkna­spils­há­tíð­inni í Svend­borg sem hald­in er sér­hvert sum­ar. Þar fyrir utan er hann öt­ull flytj­andi eig­in tón­listar og ann­arra, held­ur tón­leika á píanó jafnt sem org­el og hef­ur gef­ið út fjölda geisla­diska, ritað ævi­sögu tón­skálds og kafla í ým­is rit. Hann hefur sam­ið tón­verk fyr­ir kóra, orgel, kammer­sveit­ir og einn­ig fyrir leik­hús og kvik­mynd­ir.
Sjá nánar á povlbalslev.dk
Hlíf Sigurjóns­dóttir • sími 863−6805 • HlifSigurjons(hjá)HlifSigurjons.is • heimasíða